Ég get hins vegar ekki séð að Sean rústi þessu. Hann er ekki í hávegum hafður hjá þeim sem koma til með að sitja í kviðdómnum. Paschal og Neleh skiptu um skoðun einfaldlega vegna þess að þau eygðu möguleika á að ná aðeins lengra, ekki af því að þau væru svona hrifin af Sean og hans skoðunum. Þau sem eiga möguleika núna eru Tammy, The General, Neleh, Zoe og Paschal. Kviðdómurinn kemur aldrei til með að velja hina.