Fyrst að maður meiddist og getur ekkert verið með á æfingu núna í hátt í 2 mánuði þá ætla ég að einbeita mér á ræktinni það er að segja styrkja mig og þyngja mig. Ég er með prógram en mig vantar ráð með fæðubótarefni. Ég var að spá í að fá mér gainer og kreatín, en þá er spurningin með hverju mælið þið með? En því miður er ég ekki gæji sem á mikið af peningum þannig ég er ekkert að fara kaupa það dýrasta sem til er. Góður gainer og gott kreatín fyrir skikkanlegt verð?