Sniðugt :) Ég er svona einn af þeim sem fer yfirleitt “aldrei” eftir uppskriftum, heldur krydda og geri tilraunir svona eins og ég held að maturinn verði góður. T.d. í gær fann ég nautagúllas í frystinum. Skellti því í pott ásamt pipar, krafti og allavega grænmeti sem var til ásamt vatni. Lét þetta malla í u.þ.b. tvo tíma, bætti tómatpúrru útí, smá meira krydd (pipar og timian). Sauð þetta svo niður í hæfilegt magn af vökva, þykkti smá með maizena og setti að endingu væna klípu af rjómaosti...