Ég á ekki til eitt einasta orð!! Þessi “grein” er í raun ekki svara verð. Greinilegt er að höfundur hennar hefur ekki hugmynd um hvað hann er að tala um. Þetta er orðin mjög þreytt tugga, þetta með Dresden. Ég hef fulla samúð með fórnarlömbum loftárása, hverrar þjóðar sem þau eru og á hvaða tíma sem þessar loftárásir áttu sér stað. Staðreyndin er hinsvegar sú, að hvort sem okkur líkar betur eða verr, þá eru loftárásir á borgir órjúfanlegur hluti af hernaðarsögu síðustu aldar. Til þess að...