Gunnar Birgisson er þingmaður, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, framkvæmdastjóri eigin fyrirtækis, formaður LÍN og ætli hann sitji ekki í nokkrum stjórnum og nefndum. Björn Bjarnason er þingmaður og bæjarfulltrúi. Guðlaugur Þór er verðandi þingmaður og borgarfulltrúi. svona má áfram telja, sjálfum finnst mér afar vafasamt að menn séu svona beggja vegna borðsins þar sem að ríki og sveitarfélög sitja oft sitt hvorum megin við það. Ef að menn komast á þing ættu þeir að segja sig úr þeim embættum...