Ég er alveg sammála þér, ég er af þessari sömu kynslóð, 16 að verða 17 ára og sé þetta alveg í kringum mig. Sjálfur er ég á FULLU í íþróttum og hef ekki snert, áfengi eða tóbak og finnst alveg fáranlegt að vinir mínir þurfi endilega að drekka til að skemmta sér t.d. á menntaskólaböllunum. En meina þetta er bara þeirra val og þú getur lítið gert í þessu, ef þeir vilja gera þetta þá verður bara að leyfa þeim það vegna þess að þeir hlusta pottþétt ekki á þig ef þú reynir að skipta þér af þessu,...