Jah, ég held að aldur segi lítið um það. Ég var 16 þegar ég fann manneskjuna sem ég fann á mér að ég ætti eftir að eyða ævinni með. Ég sá alveg sólina fyrir honum, og sé hana enn. Ef manneskja getur litið ást sína gagnrýnum augum og lætur hana ekki hlaupa með sig í gönur hefur hún þroska til að dæma hvort viðkomandi er rétt(ur) fyrir hana, alveg sama hversu gömul hún er.