Guð hvað ég er sammála þessu! Líka þegar fólk setur eitthvað á borðið og fer svo aftur til að ná í eitthvað meira. Gátu þau ekki gert það á meðan þau biðu? ;S og líka fólk sem tekur sér korter í að leita að veskinu sínu þegar það er búið að standa lengi í röð! Svo má ekki gleyma vasaþjófahræddu útlendingunum sem veiða úppúr innanklæðaveskinu sínu rennilása-plastpoka, og í honum er veski sem er næstum lokað með hengilás, og í því er annað veski sem geymir peningana!