Ég myndi í þínum sporum lesa AA-bókina. Hún fæst t.d. niðri í Tjarnargötu 20, AA-húsinu og hjá flestum AA-deildum. Gott ráð er að sjá hvort þú geti hætt að drekka t.d. á virkum dögum og eina helgi í mánuði, nú eða bara að stoppa alveg í t.d. 3 mánuði. Ef þér tekst það ertu kannski ekki alkahólisti. Ef þú ert alki, þá stórefa ég að þér takist þetta. Mundu bara að það að mistakast að hætta er að skipta um skoðun.