Ég var nú að lesa þessa grein mína og ég gat ekki séð að ég segði einhversstaðar að þeir sem færu á aðra staði væru heimskir. Ég gaf aftur á móti í skyn að sá sem ég var að svara væri heimskur. Þetta sem ég sagði um gaukinn, píanóbarinn og glaumbar kom gáfnafari gesta ekkert við enda veit ég ekkert um það, en það kom aftur á móti útliti við og ég stend alveg við það, mér finnst vera hærra hlutfall af ljótu fólki inni á þessum stöðum frekar en á öðrum stöðum sem ég fer á!