Ég hef alltaf verið lang hrifnastur af þeirri hugmynd að Tom Bomandil sé Tolkien sjálfur, hef einhvern veginn aldrei keypt þá hugmynd að hann sé Alfaðir, kannski er þetta kannski bara einhver kredda í mér, ég veit það ekki. Hann segir líka að hann hafi verið til á undan öllu öðru, er hann þá ekki líka til á undan Alföður og því má segja að hann, (Tolkien sjálfur) hafi skapað heiminn og þar með Alföður í leiðinni, á undan öllu öðru. Þetta sé kannski leið Tolkiens til að aðgreina þennan heim...