Ég er sammála því sem fólk er að segja hérna. Ekki fara í pásu það eyðilegur bara sambandið. Ef kærastinn minn mundi vilja fara í pásu þá mundi ég halda að hann væri að íhuga að hætta með mér. Sjá til hvort hann myndi finna aðra og ef ekki þá myndum við byrja aftur saman. Þið ættuð frekar að eyða minni tíma saman, hitta vini ykkar og gera það sem ykkur finnst skemmtilegt. En þið verið að tala saman þó að þið hittist kannski ekki alltaf. Ef hann er svona frábær þá mundi ég ekki sleppa honum....