Ég kynntist mínum í gegnum sameiginlega vini. Vinkona mín spurði hvort ég vildi ekki koma með og spila körfu með strákunum í byrjun vors, ég sló til. Þarna var hann svo ásamt hinum strákunum sem ég þekkti, hafði aldrei séð hann áður. Þetta var eiginlega ást við fyrstu sýn hjá okkur báðum. :D Það fyndna samt við þetta er að við höfðum hist áður en mundum ekki eftir því. Það var á árshátíð í vetur, en hann tók eiginleg ekkert eftir mér. Og ég ekki eftir honum, enda var ég ekki alveg með...