Halló, langar endilega að deila með ykkur reynslu minni af sjúkdómi sem ég er með. Ég varð fyrst vör við hann í byrjun febrúar, þegar ég sá marga rauða, misstóra bletti á löppunum mínum. Ég hugsaði ekki mikið út í það, fyrr en daginn eftir. Ég fann fyrir ótrúlegum sársaukum í fótunum og ég átti erfitt með gang, að lokum lagðist ég niður á gólfið í skólanum mínum. Ég klæddi mig úr skónum og athugaði löppina, og mér brá heldur betur í brún. Það var komin stór kúla út úr löppinni, ásamt því að...