Það er rétt…. Kannski ætti ríkistjórnin að eyða meiru í landgræðslu… En það er bara erfitt að græða upp sumt land … Eins og allla sandana hér á landi..
landið kemur ekki til baka… þegar því er sökt þá er bara auðn þar sem áður var gróið land… Það tekur nokkur hundruð ár fyrir gróðurinn að koma aftur… Hvað á ég að seigja þér þetta oft…..
Móðir mín er náttúrufræðingur þannig að ég trúi henni nú betur en þér… Og plús það að þegar allur framburðurinn fer í lónstæðið þá brotnar ströndin niður afhverju? því að áin sem virkjuð er ber mikin framburð fram á ströndina sem safnast þar upp og kemur í veg fyrir það að sjórinn brjóti niður ströndina. nú mun sjórinnn brjóta niður ströndina og það er ekki gott… Bætt við 26. ágúst 2006 - 16:39 Og ef þessi framburður er svona frjósamur, afhverju er ströndin ekki gróin?
ég er að tala um á hálendinu… sorry… en það er satt að kannski henta ekki öll svæði til virkjana, en þurfum við að virkja svona mikið? Nei… Við eigum nóga orku til frambúðar( fyrir heimilin og allt það) og það er ekki það mikið afvinnuleysi hér.
Þegar þú fórst á þetta svæði. Hvað stað sástu? Það sem LV sýnir gestum sínum(auðn og auðn útsýnispallur þeirra er staðsettur með það í huga að sýna sem minnst) eða stærstan part þess sem á að sökkva sem er algróið land?
Þetta álver er ekki að fara að gera okkur rík… Þetta er gert til þess að Alcoa græði… Á því að selja ál til útlanda. Þetta lón mun fyllast af framburðiá einhverjum árum(man ekki hvað mörgum 300 eða eitthvað svipa) og þegar það er orðið fullt þá mun það taka náttúruna mörg hundruð ár að gróa uppá nýtt… Eruð þið nokkuð búnin að kynna ykkkur þetta mál frá öllum sviðum?
ísland er eitt af fáum löndum í heiminum sem eitthvað landsvæði er eftir sem er ósnortið, og afhverju að fara að eyðileggja það? Það gæti reynst dýrmætt seinna meir…. Þetta svæði hefur verið svæði hreindýra og ég sá fullt af hreindýrum þarna um daginn… Afhverju meiga þau ekki bara vera þarna í friði áfram?
Ég var að labba um þetta svæði sem á að ýmist að þurrka upp(á fulla af fallegum fossum) eða sökkva (Fallegt gróið land og aðra á) Ísland er ekki það gróið land að það sé réttlætanlegt að sökkva þessu svæði sem er næstum algróið, við sáum eitt rofabarð alla ferðina…. Kannski vorum við bara að skoða fallega svæðið en við sáum nú yfir mest allt svæðið og það var allt fallegt…. Stór svæði á íslandi eru ekkert nema sandar og enginn gróður en svo þegar finnst gróið svæði á bara að sökkva því, gott...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..