Það á auðvitað eftir að mála hana og setja í búning og svo er hún ekki í karakter. Það er í rauninni ekki hægt að segja neitt um það hvort hún passi eða ekki þegar maður sér bara mynd af stelpunni sjálfri sem hún sjálf. Ef hún myndi passa strax sem Lúna… úff!;)
Sprotinn hans Hagrids var brotinn í tvennt þegar hann var sendur í Azkaban (sjitt, var hann ekki bara þrettán ára þá? :S ). En svo er ekki hægt að kaupa almennilegan sprota handa öðrum af því að maður verður að fara sjálfur og láta sprotann velja sig. …eða þannig. Kannski sendi hann Skakklappa að kaupa sprota vitandi það að það yrði ekki besti sprotinn fyrir hann. Hver veit.
Jáh, ég hlakkaði svo til að sjá frú Weasley sjá Sirius og sjá Snape sýna myrkratáknið á handleggnum og margt fleira. Ég tók eftir því að það vantaði glerið í gleraugun hans Harrys. Hvað er málið með það að hafa það ekki einu sinni þegar þeir súmma upp að andlitinu á leikaranum svo að við sjáum allt vel og greinilga? Sammála með verðlaunagullið. Ég held að það að áhorfendur hafi ekki getað séð neitt hafi líka verið í bókunum. Minnir að ég hafi hugsað út í hvað það hlyti að vera leiðinlegt að...
Hún hlýtur að hafa vitað það, hún vissi hver Harry Potter var. Hún var búin að lesa sig til um skólann í bókinni um sögu Hogwarts og svona. Ætli hún hafi ekki bara æft sig í lestinni. Ætli litlir krakkar megi ekki alveg gera smágaldra sem þeir gera óvart og æfa sig smávegis heima við en svo eftir að þau eru orðin nógu stór og byrjuð að æfa alvöru galdra, að þá verði þau að fara að gæta sín betur. Þau kunna enga alvöru almennilega galdra áður en þau fara í skólann.
Hvað meinarðu? Lockhart er á lífi, Lupin er á lífi, Crouch yngri er, uh, líkamlega séð á lífi, Umbridge er á lífi… Þau eru öll á lífi nema Quirrel kallinn.
Það var heitt í herberginu en þegar hún hrökk upp, þá var hún búin með spána. Hún veit ekki að hún spáði þessu, hún hélt bara að hún hefði sofnað vegna hitans. Ég hef líka pælt í þessu, hvernig veit hún?
Þá á samt ekki að segja svona heldur að senda stjórnendum skilaboð vegna spoilers eða benda korkahöfundi kurteisislega á að þetta gæti eyðilagt fyrir fólki. Og þetta gildir um alla. Verum kurteis, söfnum vinum :D :p ;)
Nei, það þarf ekki að senda útdrátt ef sagan er bara í einum hluta. Útdrátturinn er fyrir lengri kaflaskiptu sögurnar og tilgangurinn er að höfundar undirbúi sig almennilega og séu með söguþráðinn á hreinu, frá upphafi til enda, svo þeir eigi ekki á hættu á að gefast upp í miðri sögu. Sjá líka grein Tzipporuh á http://hugi.is/hp/articles.php?page=view&contentId=1773241
Já, ég var heldur betur hissa sjálf. Þurfti að lesa atriðið tvisvar eða þrisvar af því að ég skildi það ekki. Ég fattaði ekki að hann hefði skotist út um gluggann, svo ég skildi ekki hvað var í gangi. :Þ
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..