Ég er frekar sammála kommentinu hérna fyrir ofan. En mér finnst ég sjá skriftar náðargáfu, haltu áfram að skrifa með því fyrir augum að tjá þig og bæta þig sem skrifara.
Haha… talaði einusinni í einmitt 6 tíma við vinkonu mína í síma um jól einhvertíma… Mútta var ekki sátt… en já… Aldrei verið með strák sem hefur nennt að tala við mig í síma neitt meira en þússt 5 mín eða eitthvað.
Já það er rétt fyrri platan var á léttari nótum og örlaði jafnvel á smá gríni en nýja platan er “alvarlegri” að því leiti að það er ekki verið að grínast og ekki mikið um fjör-lög. Persónulega fýla ég báðar í botn bara á annan hátt. Hjálmar eru bestir;)
haha já veit hvað þú meinar var einmitt að tala um það við vinkonu mína sem gerir þetta líka, þússt við skiljum hvora aðra en annað fólk er bara haaa? hvað ertu að segja… haha
Nei ég líka… Segi sko gaur aaaðeins of mikið. Vinkona mín (og ég þ.a.l. líka) segir geggt oft gaur um hluti (t.d. æji og litli gaurinn þarna bilaði…) og ég svara geggt oft bara Gaur! og þússt kalla reyndar bara stráka gaur geggt oft. … og ég er að taka eftir því núna líka að ég segi ótrúlega mikið geggt…. hljóma eins og versta gelgja…. úff…
Hittu hann á mjög opinberum stað. Helst ekki að hitta hann nema á opinberum stað eða þar sem er fullt af fólki eða hitta hann með öðrum fyrr en þú ert búin að kynnast honum betur. Það er svo auðvelt að ljúga að manni eða þykjast vera einhver annar en viðkomandi er.
Borin er frábært lag. Vá! sko Þetta sænska þjóðlag heitir á plötunni þeirra nýju “Ég vil fá mér kærustu” og það heitir það semsagt á íslensku. Veit því miður ekki hvað það heitir á sænsku:/
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..