Ég man að ég var að keyra að sunnan með fjölskyldunni fyrir nokkrum árum, þegar við komum að bíl sem hafði farið útaf og 1-2 veltur ef ég man rétt. Það blæddi úr hausnum á strák sem hafði verið í bílnum en allir hinir voru heilir sem betur fer. Við stoppuðum og hjálpuðum fólkinu, og bílstjórinn, sem var kona, hún sagði að fullt af bílum hefðu keyrt framhjá en enginn stoppað til að hjálpa þeim þangað til við komum. Samt höfðu þau sent strákinn sem blæddi úr, uppá veg til að reyna að veifa...