skaarjking: Mikið rosalega gæti ég ekki verið meira sammála þér. Allir strákar eiga víst að vera eins. Ég er strákur, þar af leiðandi hlýt ég bara að hugsa um kynlíf, tek counter-strike fram yfir hana, keyri eins og brjálæðingur og lem hana þegar ég er fullur. Óþolandi alhæfingar hjá sumum gelgjum. Ég get ekki ímyndað mér fleimið sem maður fengi ef maður myndi alhæfa eitthvað um stelpur.