Ég hef búið til ég held fjóra korka hérna þar sem ég bið um hjálp með eitthvað. Ég man ekki hvað tveir þeirra voru um en einn var um afhverju ég gat ekki séð ákveðin myndbönd á netinu og hvað ég þyrfti að gera til að laga það. Hitt var afhverju sjónvarpið mitt næði ekki Sirkus og hvernig ég ætti að laga það. Í öll þessi skipti hefur þráðunum verið eytt áður en ég sé svörin mín næsta dag. Ég hef kvartað undan þessu áður (með því að skrifa kork hérna) en eina svarið sem ég fékk (man eftir) var “Já, ég tók eftir því að korkurinn þinn hvarf veit ekki afhverju :/” eða eitthvað í þá áttina. Það er ekkert dónalegt eða ólöglegt í þessum korkum og ekkert betra eða fljótlegra áhugamál til að pósta þeim á. Ég giska á að þræðinum verði eytt áður en ég fæ svar en spyr samt: Afhverju?…