Gleymt lykilorð
Nýskráning
Hljóðfæri

Hljóðfæri

7.027 eru með Hljóðfæri sem áhugamál
113.284 stig
384 greinar
39.628 þræðir
105 tilkynningar
4.188 myndir
968 kannanir
254.447 álit
Meira

Ofurhugar

HoddiDarko HoddiDarko 1.490 stig
Diddii Diddii 1.040 stig
Tjeko Tjeko 966 stig
negrasvikari negrasvikari 832 stig
Noisemaker Noisemaker 826 stig
Addni Addni 820 stig
HlynurS HlynurS 814 stig

Stjórnendur

Uppfærð þrenning. (5 álit)

Uppfærð þrenning. Þá er þrenningin öll uppfærð. Fékk snillinginn Brooks til að setja Seymoure D. Jazz í neck og Gibson í bridge á Dottinum. Setti síðan Fender American standard í japanska Squier-inn. P-90 eru svo í japönsku lessuni.

Gibson C (11 álit)

Gibson C Hvað í fjandanum er málið. Afhverju er þessi gítar svona ótrúlega dýr.
Ég var svoldið að pæla í þessu hvað í þessum gítar gerir hann 3700000kr virði?

Gibson Firebird X (12 álit)

Gibson Firebird X Djöfull finnst mér Gibson skíta uppá bak í öðru hverju skrefi þessa dagana.

Þetta er nýjasta tækniundrið frá þeim.
5000 $ og actually made in China heyrði ég.

Þeir hjá Gibson eru orðnir svo inventive og revolutionary að þeir ákváðu að setja 23 fret á gítarinn og skýra litinn á honum Redolution.

Það er ekkert að því að setja út vörur og reyna að vera frumlegir en það er samt svo margt rangt við þessa stefnu hjá þeim. Þeir eru að leggja fáránlegar upphæðir í gítara sem að seljast örugglega í mjööög takmörkuðu upplagi og láta svo alla gítarana sem þeir selja kosta allveg rugl mikið.
Svo eru þeir líka bara að bulla með þetta body shape… Skil það að þeir vildu kannski ekki alltaf nota les paul undir robot gítarana sína… en hvað á þetta að vera? Hvað með að nota venjulega Firebird? og þetta headstock? Úff :/

Þetta er hvað, fjórði eða fimmti Robot gítarinn þeirra. Hann er með svona auto tune headstock, innbyggða effecta, brasilíkan marblewood í fingraborðinu, chambered ash búkur, turbo-charged Pure-Analog™ Digital Signal Processing (DSP) engine með Goldtone FX™ (hvað sem það nú þýðir)
Fyrsta sinn sem ég sé gítar vera með System Requirements.

Meira info: (gaman að lesa commentin þarna og sjá allar milljón ástæðurnar afhverju fólk er ekki að fýla þetta.
http://www2.gibson.com/Products/Electric-Guitars/Firebird/Gibson-USA/Firebird-X.aspx

Allavega, mitt rant er búið.
Discuss.

Barriemore Barlow (3 álit)

Barriemore Barlow Þetta er trommuleikarinn úr Jethro Tull sem er besti trommuleikari sem ég hef heyrt í

“the greatest rock drummer England ever produced” John Bonham
http://en.wikipedia.org/wiki/Barriemore_Barlow

Mæli með því að þið kynnið ykkur hann ef þið vitið ekki hver þetta er :)

Svo svalt…að ég á ekki til orð (21 álit)

Svo svalt…að ég á ekki til orð Sá þetta og fannst þetta eiginlega of svalt til þess að geta lýst með orðum.
Langaði líka svolítið að losna við sharkfininn :P

En hvað segja menn?

Gibson Shark fin (9 álit)

Gibson Shark fin Þessi kom út í fyrra frá gibson sem limited run. Bara örfáir voru gerðir og þeir eru núna nánast ófáanlegir. Sá á einhverju forumi að Gibson ætlaði að gera 350 en þurftu á endanum að gera 40 vegna kreppunar og það að það flæddi inní verksmiðjuna hjá þeim. Er ekki frá því að á sama tíma hafi verið að lögækja þá fyrir að nota ólöglegan við svo að þetta er nokkuð eðlilegt ákvörðun.

En já, þetta er eiginlega bara Gibson Explorer með cut out og nokkrum litlum breytingum.
Persónulega finnst mér hann full líka Van halen hárkarlinum: http://www.vintagekramer.com/Ed/guitar-destroyer.jpg sem var búinn til úr Ibanez Destroyer.

Svo finnst me´r þetta líka bara kjánalegt múv hjá gibson, gera einhvern frekar random gítar sem er bara engann veginn í stíl við flest sem þeir gera. Afhverju ekki að setja Kramer merki á headstockið og láta þá um að selja hann?
Það er satt að V gítarinn og Exploerinn voru óvinsælir þegar þeir komu út og náðu engum vinsældum fyrst um sinn en í dag eru þetta meðal þekktustu rokk gítara, en þetta er bara einvhernveginn ekki að gera sig að mínu mati.
Fýla samt tunerana.

Verðið á honum er auðvitað líka út í hött en hann var víst á rúma 2500 dollara þegar þeir voru að selja hann.

Fleiri upplýsingar hérna: http://www2.gibson.com/Products/Electric-Guitars/Designer/Gibson-USA/Shark-Fin.aspx

Telecaster Rosewood (7 álit)

Telecaster Rosewood Til sölu eru tveir rafgítarar í skiptum fyrir nýlegar Mac fartölvu-r, annars vegar G&L s500 USA made kr. 150 þúsund, og hins vegar Rosewood Telecaster handsmíðaður (G-Örn) kr. 350 þúsund.

Jens s. 862-7898

Arcs trommusett (9 álit)

Arcs trommusett Þetta nýsmíðaða Arcs trommusett er til sölu.

Það er úr við sem heitir askur.

Stærðir:

22x20“ Bassatrommu
12x8” Tomtom
13x9“ Tomtom
16x16” Floor tom
14x6" Sneril

Síðan fylgja líka tveir tom haldarar með þessu.

Selst á einungis 120.000 kr!!!

Ath! Cymbalar og hardware(standar, kicker, klemmur) fylgir ekki!

Fleiri myndir: http://trommari.is/index.php/spjallie?func=view&id=7271&catid=19

Ef einhver hefur áhuga, bjallið í mig annað hvort á aron(hja)trommari.is eða arcsdrums(hja)gmail.com

Settið mitt (11 álit)

Settið mitt Pearl Export
10-12-13 racktom
14-16 floortom
2x22“ bass
basic 14” export snerill

zildjian-sabian-dream-paiste-lp cymbala

Fender Blacktop (7 álit)

Fender Blacktop Er að fýla þessa nýju línu frá Fender. Hún heitir Blacktop og snýst aðallega um að flestir gítararnir þeirra eru með humbuckera.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok