Gleymt lykilorð
Nýskráning
Formúla 1

Formúla 1

5.343 eru með Formúla 1 sem áhugamál
13.362 stig
647 greinar
541 þræðir
68 tilkynningar
26 pistlar
354 myndir
452 kannanir
7.652 álit
Meira

Ofurhugar

Alert Alert 870 stig
Vala Vala 492 stig
IanAnderson IanAnderson 468 stig
atli atli 406 stig
Aiwa Aiwa 356 stig
sphinx sphinx 348 stig
maggap maggap 300 stig

Jody Scheckter (0 álit)

Jody Scheckter Suður-afríski ökumaðurinn Jody Scheckter árið 1980.

Árið 1979 varð Scheckter fyrsti (og hingað til eini) Afríkubúinn til vinna heimsmeistaratitil í Formúlu 1.

Schumacher bræður (11 álit)

Schumacher bræður Á þessari mynd sjást bræðurnir Michael Schumacher og Ralf Schumacher en þarna keyrði Michael með Ferrari en Ralf með Jordan og ef mér skjátlst ekki er myndin tekin annað hvort 98 eða 99, frekar samt 98 :)

3 Ökumenn formúlu 1. Þeir Jean Alesi, Michael Schumacher og Mika Hakkinen (10 álit)

3 Ökumenn formúlu 1. Þeir Jean Alesi, Michael Schumacher og Mika Hakkinen Þetta er mynd af þremur ökumönnum eða andlitunum af þeim. Svo er formúla 1 bíll þarna undir sem er að keyra. Þessi mynd er frekar rauðleitt og stafa það kannski af því að Mika Hakkinen, Michael Schumacher og Jean Alesi hafa allir keyrt rauða bíla. Mika Hakkinen og Michael Schumacher, til hægri og í miðju hafa unnið báðir heimsmeistaratitil. Allir eru þeir hættir í Formúlu eitt en Mika virðist ætla snúa aftur til McLaren sem var liðið sem hann vann báða sína heimsmeistaratitla með. Þeir eru allir þrír góðir ökumenn og Mika og Jean hafa báðir keppt í gtm mótarröðinni. Hægt er að lesa alveg þvílíka hrúgu af drasli og textum og margt fleira en ég mæli með þessu hérna

Melbourne 2001 - aftanákeyrsla J. Villeneuve á R. Schumacher (19 álit)

Melbourne 2001 - aftanákeyrsla J. Villeneuve á R. Schumacher Af þeim sem horfðu á þessa keppni, þá held ég að þetta atvik muni seint líða úr minni nokkurs manns. Fljótlega eftir að keppnin hófst þá gerðist þetta skelfilega slys. Jacques Villeneuve keyrði aftan á Ralf Schumacher, og sá fyrrnefndi tekst á loft og spænir upp bílinn utan í vegriðinu. Ekki við ósvipaðar aðstæður og slys Martin Brundle árið 1996.

En hér höfum við síðasta banaslysið í Formúlu 1 [fram til dagsins í dag], en ástralskur brautarvörður lét lífið þegar dekk og fjöðrunarbúnaður frá Villeneuve lenti á honum. Skelfilegt slys, sem minnir okkur á að þrátt fyrir að hægt sé að bæta bílanna hvað öryggið varðar, þá er hættan enn til staðar.

Tyrrell P34 (a.k.a. 6 hjóla-bíllinn) (6 álit)

Tyrrell P34 (a.k.a. 6 hjóla-bíllinn) Bíll: Tyrrell P34
Vél: V8 Ford Cosworth 3.0 lítra
Dekk: Goodyear
Fjöldi keppna: 30 (Spánn 1976 - Japan 1977).
Fjöldi sigra: 1 (Jody Scheckter, Svíþjóð 1973).
Fjöldi ráspóla: 1 (Jody Scheckter, Svíþjóð 1973).
Fjöldi skipta í verðlaunasæti: 14.
Hönnuður: Derek Gardner
Ökumenn: Patrick Depailler (30 keppnir), Jody Scheckter (12 keppnir), Ronnie Peterson (17 keppnir).

Enn sem komið er þá er Tyrrell P34 eini 6 hjóla bíllinn sem keppt hefur í kappakstri, þó að March, Ferrari og Williams hafi smíðað 6 hjólabíla en þó ekki notað í kappakstri.
Notkun P34 var hætt þar sem Goodyear sá sér ekki fært um að þróa litlu 10" dekkin að framan.

Nürburgring-Nordschleife 1976 - Niki Lauda slysið (4 álit)

Nürburgring-Nordschleife 1976 - Niki Lauda slysið Þýski kappaksturinn á gömlu Nürburgring 1. ágúst 1976.

Niki Lauda missti stjórn á Ferrari bifreið sinni á Bergwerk kaflanum, sem er á bakkafla brautarinnar, og kastaðist út í kant, það kviknar í henni og hún heldur áfram að skoppa og staðnæmist inn á braut. Guy Edwards hjá Hesketh liðinu rétt náði að smeygja sér framhjá Lauda, en Harald Ertl (Hesketh) og Brett Lunger (Surtees) lentu báðir á Ferrari bíl Lauda.
Edwards, Ertl og Lunger reyndu allir að ná Lauda út úr brennandi bifreiðinni, og fljótlega kom Arturo Merzario, stöðvaði Wolf Williams bifreið sína og hjálpaði hinum þremur.
Lauda var fluttur á spítala í Adenau með alvarleg brunasár, og var flogið með hann til Háskólasjúkrahússins í Mannheim þar sem hann barðist fyrir lífi sínu í næstu daga.
Aðeins 6 vikum síðar var hann mættur til leiks, ennþá með forystu í keppni ökumanna.

[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=qMooguEtmMg

Michael Schumacher fótbrotnar (5 álit)

Michael Schumacher fótbrotnar Breski kappaksturinn 1999: Schumacher lendir útaf og klessukeyrir á vegg og fótbrotnar. Atvikið kostaði hann baráttuna um titilinn þetta árið, og var hann frá í 7 mót.

Ökumenn F1 1999 (5 álit)

Ökumenn F1 1999 Hér má sjá “byrjunarliðið” í Formúlu 1 eins og það var fyrir ástralska kappaksturinn 1999.

Í efstu röð frá vinstri:
Jean Alesi #11 (Sauber Petronas),
Pedro Diniz #12 (Sauber Petronas),
Jacques Villeneuve #22 (BAR Supertec),
Riccardo Zonta #23, nýliði(BAR Supertec),
Rubens Barrichello #16 (Stewart Ford-Cosworth)
og Johnny Herbert #17 (Stewart Ford-Cosworth).

Í miðröð frá vinstri:
Pedro de la Rosa #14, nýliði (Arrows),
Toranosuke Takagi #15 (Arrows),
Alessandro Zanardi #5 (Williams Supertec),
Ralf Schumacher #6 (Williams Supertec),
Heinz Harald Frentzen #8 (Jordan Mügen-Honda),
Damon Hill #7 (Jordan Mügen-Honda),
Luca Badoer #20 (Minardi Ford-Cosworth)
og Marc Gené #21, nýliði (Minardi Ford-Cosworth).

Fremsta röð frá vinstri:
Giancarlo Fisichella #9 (Benetton Playlife),
Alexander Würz #10 (Benetton Playlife),
David Coulthard #2 (McLaren Mercedes),
Mika Häkkinen #1 (McLaren Mercedes),
Michael Schumacher #3 (Ferrari),
Eddie Irvine #4 (Ferrari),
Jarno Trulli #19 (Prost Peugeot)
og Olivier Panis #18 (Prost Peugeot).

Jerez 1997 (2 álit)

Jerez 1997 Sekúndubrotum áður en Michael Schumacher keyrir inn í hliðina á Jacques Villeneuve.

Atvikið átti sér stað á hring 48 af 69 í Evrópukappakstrinum 1997, sem að þessu sinni var haldinn á Jerez brautinni á Spáni. Fyrir keppnina hafði Schumacher 1 stigs forskot á Villeneuve; 78 gegn 77.

Í tímatökunni varð sögulegur viðburður, þegar að 3 ökumenn náðu sama ráspólstíma, en Villeneuve hafði vinninginn þar sem hann hafði sett tímann fyrstur, og Schumacher í öðru og Frentzen í þriðja.

Í startinu náði Schumacher betra starti og leiddi keppnina frá 1. beygju. Frentzen komst einnig fram fyrir Villeneuve, en hleypti honum framúr aftur nokkrum hringjum síðar. Villeneuve nálgaðist Schumacher óðfluga, og eftir seinni stoppin þeirra náði Villeneuve Schumacher og gerði reyndu að komast fram úr honum á 48. hring, en Schumacher keyrir inn í hliðina á honum og er úr leik. Villeneuve nær hins vegar að halda áfram, á skemmdum bíl, og forskotið dugði honum fram á síðasta hring þegar McLaren bílarnir tóku fram úr honum. Villeneuve varð 3., náði þar af leiðandi 4 stigum og varð heimsmeistari með 81 stigi á móti 78 stigum Schumachers.

Nokkru síðar var Schumacher svo sviptur 2. sætinu í heimsmeistarakeppninni 1997, en hann hélt heildarárangri sínum fyrir keppnistímabilið, og Ferrari fékk að halda stigum Schumachers.

Adelaide 1994 (1 álit)

Adelaide 1994 Áreksturinn sem réði úrslitum heimsmeistarakeppninnar 1994 - árekstur Michael Schumacher á Benetton Ford og Damon Hill á Williams Renault, á 21. hring af 81.

Enn er deilt um hvort áreksturinn hafi verið viljaverk eða óviljaverk að hálfu Michael Schumacher.

Dæmið bara sjálf:
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=kaqWSloTpgo

Ég get aðeins túlkað myndbandið svona: Schumacher missir grip og keyrir utan í vegg. Þar skemmir hann bílinn sinn. Í þann mund sem hann kemur aftur inn á brautina er Hill kominn í skottið á honum og reynir að komast framúr, en Schumacher “blockerar” hann og á endanum tekur Schumacher þröngu línuna í gegnum beygjuna og kemur síður en svo í veg fyrir árekstur. Hann keyrir upp á dekkið hjá Hill og flýgur útaf og er undir eins úr leik. Hill aftur á móti heldur áfram, en fljótlega kemur í ljós að stöng í fjöðruninni er bogin, og er Hill úr leik.

Þetta þýddi það að Schumacher var heimsmeistari með 92 stig á móti 91 stigi Hill. Williams liðið ákvað að aðhafast ekki frekar og stóðu því úrslitin.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok