Gleymt lykilorð
Nýskráning
Dulspeki

Dulspeki

5.977 eru með Dulspeki sem áhugamál
22.114 stig
852 greinar
2.705 þræðir
45 tilkynningar
85 pistlar
472 myndir
612 kannanir
42.974 álit
Meira

Ofurhugar

Abigel Abigel 1.822 stig
divaa divaa 746 stig
hbraga hbraga 618 stig
icez icez 320 stig
tigra tigra 226 stig
deadsoul deadsoul 188 stig
Wiggi Wiggi 178 stig

Stjórnendur

Pentagram með frumaflatengingum (25 álit)

Pentagram með frumaflatengingum Hér er Pentagramið (eða fimmarmastjarnan) sýnd með tengingum við frumöflin. Það var upprunalega Pýþagóras sem tengdi pentagramið við frumöflin fjögur - eld, jörð, vatn og loft - og svo við sálina eða “the psyche” eða “spirit”.

Í dag hafa margir nýheiðingjar þessa skoðun líka, þar á meðal Wicca-fylgjendur.

Stonehenge (23 álit)

Stonehenge Ég er ekki frá því að þetta sem furðulegasti staður jarðar. Alveg ótrúlega margar spurningar sem vakna upp þegar maður pælir aðeins í þessu.

Þróunin (6 álit)

Þróunin Er þetta málið

Venus.... Sannleikurinn á bak við djöflastjörnuna (19 álit)

Venus.... Sannleikurinn á bak við djöflastjörnuna Djöflastjarnan svokallaða var búin til af kirkjunni en hún var upphaflega eitt aðal trúartáknið í heiðnum trúum.
Venus er konan og heiðnir menn lofsungu hinn heilaga kvennleika. Stjarnan myndaði fullkomna fimm-arma stjörnu og þess vegna var þetta eitt aðal helgitókn heiðinn manna.

Þegar kristni var að koma upp sem ný trú reyndu kardínálanir að skemma aðrar trúir með því að segja t.d að Stjarna hins heilaga kvennleika væri tákn djöfulsins.

Upphafsmenn nútíma spiritjúalisma (21 álit)

Upphafsmenn nútíma spiritjúalisma Á myndinni sjást Fox systurnar Margaret, Kate og Leah frá vinstri til hægri en þær tvær fyrrnefndu eru að jafnaði taldar upphafsmenn nútíma spiritjúalisma, svo sem miðlum, húgögn á hreyfingu og fleira í þeim dúr.

Árið 1848, Kate þá 10 ára og Margaret 12 ára, flutti Fox fjölskyldan til Hydesville í New York fylki í hús sem átti víst að vera drauggangur í.

Fjölskyldan tekur fljótt eftir smellum í húsinu og hljóðum af húsgögnum á hreyfingu. Að kvöldi til 31 mars tekur Kate upp á því að spyrja drauginn hvort hann geti endurtekið smelli sem hún býr til með fingrunum.
Til mikillar furðu þá heyrast jafn margir smellir í húsinu eftir að hún hefur lokið við að smella fingrunum.
Þau ná ólm í nágrannana og með tímanum þróast þetta út í flóknari samskipti þar sem draugurinn smellir þegar systurnar spyrja hann hvað þær séu gamlar og út í kerfi þar sem einn smellur þýðir já og tveir þýða nei.
Einnig tekst þeim að skapa aðferð þannig draugurinn smellir ákveðið oft fyrir ákveðna stafi í stafrófinu.
Hann segist heita Charles B. Rosma og hafa verið farandmaður sem hafi verið drepinn og grafinn í húsinu.

Þegar grafið er í kjallaranum finnast beinaleifar en það er ekki fyrr en 1904 sem heil beinagrind finnst í kjallara hússins.

Í öllum æsingnum eru systurnar sendar til ættingja sinna í nálægum bæ, hvor á sinn staðinn.
Ef grunur efasemdamanna um svindl hafði ekki kviknað fyrr þá var góð ástæða til þess nú, því svo virtist sem draugagangurinn elti systurnar en Charles B. Rosma létt ekkert á sér kræla meðan þær voru ekki í húsinu.

Þær verða báðar miðlar og í kjölfarið kemur alda af fólki sem telur sig geta talað við látna og markast þar upphaf nútíma dulspeki.
Eftir 40 ár, árið 1888, í von um smá auka aur þá ákveða þær að opinbera aðferðir sínar fyrir blaðamanni í staðinn fyrir $1500.

Kate er viðstödd þegar Margaret kemur fram á sviði tónlistarakademíu New York borgar, 21. október, og frammi fyrir áhorfendum og lærðum læknum, lætur braka í tánum á sér svo smellirnir heyrast út um allt. Tilgátan um tásmelli systranna hafði orðið til af efasemdamönnum 1851 en fékk fyrst staðfestingu þarna.

Jafnvel eftir það að upphafsmenn miðlastéttarinnar hafi viðurkennt að þær hafi verið svindlarar þá þráast margir enn við og jafnvel Magnús Skarphéðinsson, formaður sálarrannsóknafélagsins og bróðir Össurar Skarphéðinssonar, telur þær enn þann dag í dag góða miðla.

Spúkí (15 álit)

Spúkí Ég var á fjörukránni að skoða og taka myndir, það var verið að fara að loka svo það var búið að slökkva flest öll ljós, við innganginn var lítið herbergi bakvið gler og ég gat rétt séð einhverskonar uppstillingu á herbergi, ég tók mynd allt í lagi.
daginn eftir brá mér heldur betur í brún þesar þessi gína var það eina sem sást, ég hafði ekki séð hana þarna inni :)
langaði bara að deila þessu með ykkur, hjartað í mér stoppaði í hálfa sekóntu :D

Verndarengillinn (13 álit)

Verndarengillinn þessi mynd var tekin eftir banaslys…frekar freaky

Benny Hinn (34 álit)

Benny Hinn Kraftaverkamaður eða loddari?
Hvað finnst ykkur?


Mér hefur alltaf fundist eitthvað “fishy” við hann…

gömul draugamynd (31 álit)

gömul draugamynd gömul mynd tekin 1930 á hestamanna klúp er ekki legnur til eigandi myndarinar tók eftir veruni þarna skannaði þetta inná tölvuna og sendi þetta á dulspeki síðuna www.ghoststudy.com

Out of body (3 álit)

Out of body Hm, bara út úr líkamanum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok