Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Kvöldstund (3 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Ég lenti í rifrildi við kerlinguna hana mömmu. Öllu þarf hún nú að skipta sér af. Segir að ég sé alkólisti! Ég alkólisti! Segðu mér annan. Ég helti mér í glas til að róa taugarnar. Jú jú ég drekk eins og meiri hlutinn af þessari blessaðri víkingaþjóð. Ég er nú ekki nema tuttugu og fimm ára. Það er ekki eins og ég sé einhver fimmtugur róni niðri á Hlemm. Ég mæti alltaf í vinnuna enda er ég í góðri vinnu sem bílasali. Ég er bara eins og allir hinir vinir mínir, við djömmum um helgar. Jú ég...

Nóttin (4 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Nóttin skilur öll mín sár nóttin sér mig alla af vanga stríkur bitur tár er óðar niður falla Máninn syngur sofðu rótt máninn skilur tárin Sofðu sofðu allt er hljótt máninn læknar sárin Dagur kemur Dagný mín dagur engan blekkir dagur sýnir sárin þín öllum sem þú þekki

Mannstu sumarið. (1 álit)

í Smásögur fyrir 23 árum, 1 mánuði
Mannstu sumarið? Mannstu sumarið sem við vorum saman, sumarið sem að var tíminn okkar? Sá tími er nú löngu liðinn. Úrið uppfinning mannanna hefur þurrkað hann út enn hann lifir enn í huga mínum. Tíminn okkar. Ég man hvernig hönd þín var viðkomu. Hvað það var gott að kúra hjá þér fyrir svefninn. Hvernig rödd þín hljómaði. Hvernig augu þín ljómuðu þegar þú horfðir á mig. Hvernig við hlógum saman. Hvernig þú stríddir mér og brostir góðlátlega. Hvernig þú áttir það til að halda fast utan um mig...

Hann og Hún (2 álit)

í Smásögur fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þau sátu í sófanum og hrjúfruðu sig upp að hvort öðru. Hann og hún. Hún ný komin úr sturtu þannig að sítt dökkt hárið skildi eftir sig blautan blett á náttkjólnum og hann í gallabuxum og bol. Þau þögðu bæði og störðu á sjónvarpsskjáinn án þess þó að vera að fylgjast með því sem í sjónvarpinu var. Þögnin var þrúgandi og full af ósögðum orðum. Orðum um hann og hana. Orðum um konu sem hann þekkti enn ekki hún. Orðum um svik. Orðum sem aldrei yrðu sögð. Þannig að þessi ósögðu orð voru dæmd til...

Mistök (8 álit)

í Smásögur fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þegar ég dó þá sá ég að líf mitt hafði alls ekki verið eins innihaldslaust og vonlaust eins og ég hélt. Daginn eftir að ég dó fékk ég mér smá göngu. Kaldur andvarinn lék um sálu mína og fuglarnir sungu fyrir mig. Enn einhvernveginn var tilfinningin ekki sú sama og áður. Það eina sem komst fyrir í huga mínum var þessi sama vanlíðan og hafði verið þar í svo mörg ár og við hana hafði nú bæst söknuður. Ég saknaði lífsins og ég saknaði fólksins mín. Ég sem hafði dáið með þeim tilgangi einum að...

Ferðin (12 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Með trega í hjarta held ég af stað ferðast um táradalinn. Leiðinn liggur í himnannahlað þar sem hamingjan liggur falin. Ég fer gegnum skóginn sem öskrar á mig reynir sál mína að fanga. Hann vill að ég óttist og hræðist sig sína ísköldu stirnuðu anga. Ég er yfir ánna sem geymir heimsins tár þar sem sorgmæddar sálir synda. Hún geymir brostnar vonir og þrár og hjörtu sem þarf að kynda. Ég geng yfir sandinn sem hylur það ljóta sem heimurinn hefur að geyma. Hann reynir í sál mína illsku að skjóta...

Ljósið (5 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Tíminn kemur tíminn fer tíminn vakir inni í þér Ljósið lifir myrkrið deyr ljósið lýsir meir og meir Þú ert lífið þú ert ljós þú ert tímans rauða rós Höf/Dagga

Hversu lengi á að bíða? (13 álit)

í Rómantík fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég á vinkonu sem er hrifin af þessum strák. Sem er algjör hálviti að mínu mati (þó hann sé vinur minn). Enn ok þó hún sé hrifin af hálfvita. Þau eru búin að vera saman um helgar og sundur í miðri viku í eitt og hálft ár! Fyrir ári byrjuðu þau opinberlega saman og hann döpaði henni eftir nokkra daga! Því hann vissi ekki hvað hann vildi. Hann sagðist elska hana og allt það enn hann væri bara ekki tilbúin í þetta núna. Hann bað hana um að bíða eftir sér. Ok hún beið og beið og árið leið (smá...

Ein (0 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hér er eitt sem ég hef persónulega aldrei verið neitt hrifin af mér sjálf. Finnst að ég hefði getað gert betur… enn jæja ég læt það flakka. Hún er ein stendur uppi á stein hjarta hennar sundurtætt í marga daga hefur blætt maðurinn með svarta hárið gaf henni sorgina og tárið. Af ást kom hann, af hatri fór hann Og hún elskaði þennan grimma mann. Til himins hún teygir sína arma leitar að guði vill hann faðma ekkert gerist allt er hljótt myrkur allt í kring dimma nótt. Hún er ein stendur uppi á...

Aleinn (0 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þetta ljóð skrifaði ég eftir að mig dreymdi mjög sorglegan draum um að ég væri karlmaður. Reyndar var það ekki sorglegi parturinn við drauminn að ég væri karlmaður :) Einmanna váfra ég um strætin í þessari sorgmæddu borg. Kringum mig öskrin og lætin auka á þessa sorg. Ég tek ekki eftir neinu af því sem í kingum mig er. Ég man bara eftir því einu að þú ert ei lengur hér. Sorgin hún sker í mitt hjarta, því dauðinn hann sýndi sig. Hrifsaði ljósið mitt bjarta í burtu hann fór með þig. Nú er ég...

Samtal (9 álit)

í Smásögur fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég er búin að vera að leika mér að skrifa upp samtöl og hérna kemur eitt…. endilega segið mér hvað ykkur finnst. -Finnurðu lyktina? -Já, hvaða lykt er þetta? -Þetta er lykt af aldargamalli reiði. -Ofboðslega sterkur fnykur. Veistu hvaðan hún kemur? -Já. Líttu inn í hjarta mitt og sál mína og þá sérðu reykinn. -Kemur þessi rjúkandi reiði frá þér? -Já. -Afhverju ertu svona reið? -Ég er reið út í lífið. -Enn veistu ekki að lífið er vinur þinn. -Lífið er ekki vinur minn. Lífið er drápsvél...

Þunglyndi. (9 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Er doðinn færist yfir líkama og sál slokknar öll mín gleði öll mín heitu bál Drunginn tekur völdin og ræður ríkjum þá eiturtungum og spjótum byrjar hann að sá Ég veit að þetta endar með blóði á hendi mér og feluleik með sárin sem engin annar sér Höf/Dagga

ÞÚ (4 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Í gullnu skini brosa þinna býr ástin. Í tærri tjörn augna þinna býr friðurinn. Í húsi sálar minnar býr kærleikurinn. Á dyr hjarta þíns knýr sál mín. Höf/Dagga.

Vika. (14 álit)

í Smásögur fyrir 23 árum, 6 mánuðum
13. febrúar 2000. Ég opna augun, rís upp, fer framm á klósett og æli. Í dag er sunnudagur, þynnkudagur hinnar íslensku æsku. Í dag hef ég viðbjóð á sjálfri mér og langar ekki til að lifa. Mánudagur tekur við af sunnudegi, mánudagur stendur fyrir nýja vinnuviku, ekkert alkahól, nýja reikninga og hverdagsleikan í öllu sínu veldi. Í dag hef ég ekki orku til að lifa svo að ég skríð skjálfandi upp í rúm og breiði upp yfir haus. Ég ætla að dreyma. Ég ætla að vera prinsessa í stórri höll. Ég verð...

Í dögun (4 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Í dögun mun fara þögull og fár. Í svart tómið stara fölur og grár. Hann augunum lygnir andvarpar lágt brjóst sitt signir og segir fátt. Á enni dropar sviti hendur skjálfa títt. Í kroppnum enginn hiti þótt úti sé hlýtt. Að baki liggja gömul spor sem gleymd eru nú. Þá hafði hann dug og þor og á lífinu trú. Í vasa geymir nálar sprautu og dóp. Heilafrumum kálar með hassi og kók. Orðin er að skugga af sjálfum sér, vel földum glugga sem enginn sér. Höf/Dagga.

Hvar lenda þau? (15 álit)

í Dulspeki fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég var að vellta því fyrir mér hvar fólk sem tæki sitt eigið líf lenti eftir dauðann. Hvort að það myndi losna við öll vandamálin og vanlíðanina sem að fékk það til að fremja verknaðinn eða hvort að það þyrfti að taka á þessum málum þegar það væri komið yfir “móðuna miklu”! Þannig að það væri engin lausn í rauninn að taka sitt eigið líf því að kannski sleppur þetta fólk ekki við það sem það var að flýja heldur þyrfti að takast á við vandann bara á öðrum stað. Hvað finnst ykkur um það?
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok