Tilgangur áhugamálsins um hunda er að vera vettvangur umræðu um hunda og alls kyns málefni því tengdu, fyrst og fremst í fræðsluskyni fyrir þá sem þar taka þátt.
Vonast er eftir opinni og fordómalausri umræðu þar sem þátttakendur umgangast hvern annan af virðingu og tillitsemi.
Þátttaka undir skjánafni á hugi.is er til þess að þáttakendur geti tekið þátt, sent inn fyrirspurnir eða svarað, með opnari huga en mögulega væri hægt undir nafni.
Skjánöfnin veita ekki leyfi til hegðunar sem er særandi eða á einhvern hátt neikvæð fyrir framgang umræðunnar.
Stjórnendur áhugamálsins hafa rétt til að eyða út hverju því efni sem ekki er metið falla að tilgangi áhugamálsins.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..