Nafn foreldra(notendanafn huga): PINKY & safapressa
Nafn barns: Jónas Bresi Aldur/fæðingardagur: 2ára/28 Mánaða / 21.05 2008 Hve margar merkur var barnið: 11 merkur Stærð við fæðingu: 47 cm Lengd/þyngd nú: 87cm sirka og tæp 14 kg Hvað gekkstu langt: 38+3 daga Venjuleg, keisari, sogklukka eða sitjandi fæðing: Sogklukku
Uppáhaldsmatur: Steiktur fiskur í raspi Uppáhaldsleikur: Eltingarleikur Uppáhaldsleikfang: Ekkert enn sem komið er Uppáhaldsstaður: Líklegast sófinn heima hehe Besti vinur: Hugsa að það sé systir hans :) Hefur barnið einhvern tímann veikst eða slasast? Endalausar kvefpestir, lungnabólga, eyrnabólgur, berkjubólga. Svo lenti hann í smá óhappi í júní 2010, þá hjólaði hann niður stiga og lenti á andlitinu og braut þar báðar framtennurnar í efri gómnum og er v laga skarð í þeim núna, svo datt hann á leið í leikskólann og datt þar úr olnbogalið, og svo nokkrar skrámur og rispur sem er bara eðlilegt hehe Er barnið hjá dagmömmu/leikskóla? Leikskóla síðan í ágúst 2009 og líkar það mjög vel Á barnið eitthvað gæludýr? Neibb Er einhver hátíð í uppáháldi hjá barninu? Honum finnst jólin spennandi og áramótin Annað: Hann er alger skæruliði og er langt komin á veg með að vera altalandi, þekkir rosalega vel til svæða t.d ef við erum í bíl og keyrum framhjá blokkinni okkar veit hann að það sé heima og þannig lagað, svo á hann 2 syskini, eina alsystur sem er 17 mánaða og einn hálfbróður sem er 7 ára, honum finnst æði að fara í heimsókn til ömmu sinnar og finnst líka gaman í bíltúr. Held þetta sé ágætt í bili bara ;)
SEPTEMBER 2010
Nafn foreldra(notendanafn huga): CountessBathory og Darth
Nafn barns: Freyja Sif Aldur/fæðingardagur: 6 mánaða / 01.04 2010 Hve margar merkur var barnið: 15 merkur Stærð við fæðingu: 50 cm Lengd/þyngd nú: Hvað gekkstu langt: 39+2 Venjuleg, keisari, sogklukka eða sitjandi fæðing: Venjuleg með mikilli mænudeifingu :D
Uppáhaldsmatur: Brjóstamjólk og Hrísgrautur með banana og sveskjubragði! :P Uppáhaldsleikur: Toga í allt og svo hlusta á aðra syngja Uppáhaldsleikfang: Hringla og tau-bók Uppáhaldsstaður: Leikgrindin Besti vinur: pabbi Hefur barnið einhvern tímann veikst eða slasast? Bara kvef, ekkert alvarlegra Er barnið hjá dagmömmu/leikskóla? Hvorugt, bara heima Á barnið eitthvað gæludýr? Nei Er einhver hátíð í uppáháldi hjá barninu? Henni fannst víkingahátíðin æði Annað: Hún liggur aldrei á bakinu lengur, veltir sér beint á magann, elskar hluti með myndum, reynir helst að taka þá af ef hún getur, talar rosalega mikið, þ.e. segjir "vavavavava" og svo finnst henni rosalega gamana að bíta foreldra sína með tönnunum sínum tveim.
ÁGÚST 2010
Nafn foreldra(notendanafn huga): saedis88 & optimusprime
Nafn barns: Sólrún Ylfa Aldur/fæðingardagur: 1 árs - 13.Júlí 09' Hve margar merkur var barnið: 12 merkur Stærð við fæðingu: 52 cm Lengd/þyngd nú: Hvað gekkstu langt: 40+1 Venjuleg, keisari, sogklukka eða sitjandi fæðing: venjuleg
Uppáhaldsmatur: Hafragrautur Uppáhaldsleikur: stríðnisleikur Uppáhaldsleikfang: Dúkka Uppáhaldsstaður: Fangið á pabba Besti vinur: hundurinn Hefur barnið einhvern tímann veikst eða slasast?já 3 lungnabólgur Er barnið hjá dagmömmu/leikskóla? byrjar í ágúst '10 Á barnið eitthvað gæludýr? Nei Er einhver hátíð í uppáháldi hjá barninu? Sumarið Annað: Hún er alger skæruliði, hún stendur upp við allt, klifrar upp á allt, er alger tætirófa, elskar fjarstýringar og síma, hundamaturinn er líka næring, segir nokkur orð, svo er hún voða mikil skellibjalla oftast brosandi allann hringinn og voða gaman hjá henni. Hún á eina 4 ára hálfsystur, og er komin með 6 tennur.
APRÍL 2010
Nafn foreldra(notendanafn huga): PINKY
Nafn barns: Lena Maídís Jóhannsdóttir Aldur/fæðingardagur: 10. mánaða - 18.Maí 09' Hve margar merkur var barnið: tæpar 10 merkur Stærð við fæðingu: 46 cm Lengd/þyngd nú: c.a 70-72 cm og ~6.6kg Hvað gekkstu langt: 38 vikur og 4 daga Venjuleg, keisari, sogklukka eða sitjandi fæðing: Sitjandi
Uppáhaldsmatur: Allt sem kemst munni næst:) Uppáhaldsleikur: eltingarleikur Uppáhaldsleikfang: Dúkkan og allt sem hún finnur Uppáhaldsstaður: Stofan heima Besti vinur: Mamma sín :)
Hefur barnið einhvern tímann veikst eða slasast? já fullt af venjulegum kvefpestum, er með astma núna Er barnið hjá dagmömmu/leikskóla? Nei hún er enn heima en á biðlista eftir leikskólaplássi Á barnið eitthvað gæludýr? Nei Er einhver hátíð í uppáháldi hjá barninu? Henni þótti jólin voða spennó Annað: Hún er alger skæruliði, skríður hermannaskrið, nýbyrjuð að sitja, aðeins farin að standa með stuðningi, segir neijneij, dada, paba, mama, det(þetta) baba, lala, svo er hún voða mikil skellibjalla oftast brosandi allann hringinn og voða gaman hjá henni. Hún á einn 22 mánaða albróður og einn 6 ára hálfbróður :) MARS 2010
Nafn foreldra(notendanafn huga): PINKY
Nafn barns: Jónas Bresi Jóhannsson Aldur/fæðingardagur: 21. mánaða - 21.Maí 08' Hve margar merkur var barnið: 11 merkur Stærð við fæðingu: 47 cm Lengd/þyngd nú: c.a 84 cm og ~11kg Hvað gekkstu langt: 38 vikur og 3 daga Venjuleg, keisari, sogklukka eða sitjandi fæðing:Venjuleg með sogklukku
Uppáhaldsmatur: Hann er alltaf voða spenntur fyrir pizzu, pasta, of steiktum fisk Uppáhaldsleikur: Rusla til fyrir mömmu haha Uppáhaldsleikfang: Bílar og kisu bangsi Uppáhaldsstaður: Stofan heima og leikskólinn Besti vinur: Veit nú ekki hver besti vinur hans er hehe en það gæti verið Steini frændi hans sem er ný orðinn 2 ára
Hefur barnið einhvern tímann veikst eða slasast? Já hann hefur veikst ansi oft, legið einu sinni inni á spítala, og nokkrum sinnum fengið smá skrámur en ekkert alvarlegt Er barnið hjá dagmömmu/leikskóla? Leikskóla síðan í ágúst 09 Á barnið eitthvað gæludýr? Hamstur Er einhver hátíð í uppáháldi hjá barninu? Hann er enn svo lítill til að vera að fatta þetta stúss, en honum þótti áramótin rosa spennandi Annað: Hann á litla 9 mánaða systur sem hann elskar að stríða og einn 6 ára hálfbróður, hann á það til með að vera rosalega óþekkur, hann er farinn að reyna við "höfuð herðar hné og tær", talar helling af orðum og farinn að setja orðin saman og reyna mynda setningar, hann vill alls ekki sjá svið en sviðasulta er nammi namm að hans mati, hann er brjálaður í slátur hvort sem það er súrt eða ekki, hann er alger grallari og reynir alltaf að komast fram á stigagang til að æfa sig á stigunum, hann er rosalegur pabba strákur og þekkir pabba sinn á ljósmyndum, honum þýkir Bubbi byggir sæmilega skemmtilegur en hann skortir smá þolinmæði til að sitja kyrr, en ætli þetta sé ekki nóg í bili :D
FEBRÚAR 2010
Nafn foreldra(notendanafn huga): annacrazy(Anna Sif)
Nafn barns: Alexander Ívar Helgason Aldur/fæðingardagur: 15. mánaða 8.nóv 08' Hve margar merkur var barnið: 14 merkur Stærð við fæðingu: 51 cm Lengd/þyngd nú: 78cm og 8,5kg Hvað gekkstu langt: 41 viku og 1 dag Venjuleg, keisari, sogklukka eða sitjandi fæðing: Venjuleg í
vatni :)
Uppáhaldsmatur: ýsa með kartöflum Uppáhaldsleikur: fótbolti Uppáhaldsleikfang: talna púsl Uppáhaldsstaður: heima bara Besti vinur: Benjamín
Hefur barnið einhvern tímann veikst eða slasast? Já oft Er barnið hjá dagmömmu/leikskóla? nei í pössun hjá ömmu
sinni Á barnið eitthvað gæludýr? einn heimilisköttur, Nebbi Er einhver hátíð í uppáháldi hjá barninu? jólin og
afmæli Annað: ekkert meir
JANÚAR 2010
Nafn foreldra(notendanafn huga): Tarantula(Lillý) og Sævar
Nafn barns: Kristrún Naomi Mendes Aldur/fæðingardagur: 2mánaða - 09.11.2009 Hve margar merkur var barnið: tæpar 14 Stærð við fæðingu: 51,5 cm Lengd/þyngd nú: Hún var 5070gr og 58cm í 6vikna skoðnuninni,
er 9 vikna núna svo hún er væntanlega stærri og þyngri :) Hvað gekkstu langt: 41 viku og 1 dag Venjuleg, keisari, sogklukka eða sitjandi fæðing: venjuleg
fæðing :)
Uppáhaldsmatur: brjóstamjólk Uppáhaldsleikur: spjalla saman á "angú-málinu" Uppáhaldsleikfang: Óróinn í rúminu hennar Uppáhaldsstaður: hjá mömmu og pabba Besti vinur: enþá bara mamma og pabbi ;)
Hefur barnið einhvern tímann veikst eða slasast? hún hefur
fengið kvef :( Er barnið hjá dagmömmu/leikskóla? neibb Á barnið eitthvað gæludýr? neibb Er einhver hátíð í uppáháldi hjá barninu? Jólin og áramótin
er eina sem hún hefur upplifað og þá mundi ég segja að henni líkaði
betur við jólin ;) Annað: hún er yndislegasta barnið í heiminum af mati okkar
foreldra og við elskum hana mest!
Langar þig að barnið þitt verði barn mánaðarins ? Sendu þá póst
á
PINKY,
immurz
eða
saedis88
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..