Það er aldrei að vita - stefnan fer brátt að markast, fyrst ljóst er að keppt verður í RTCW á Skjálfta 1 | 2002. Ég reikna þó með að við leyfum samfélaginu aðeins að vaxa áður en við förum að experimenta mikið með slíkt á þjóninum.
Og smá info um custom model/skin/crosshair/o.s.frv:
Ástæða þess að ekki er hægt að nota custom model,skin, crosshair og fleira á flestum RTCW þjónum (þar á meðal Skjálfta) er að þeir keyra sv_pure 1. Þetta hafa allir Quake III Arena þjónar á Skjálfta gert svo til frá fyrsta degi, og má búast við að sama gildi um RTCW. Pure server er snilldarleið til að koma í veg fyrir sum svindl, og tryggja að allir sitji við sama borð (í raun að allir séu að spila sama leikinn :P).
ps. þjónninn verður uppfærður í 1.1 mjög fljótlega