Wolfenstein krest ekki CD-Key á LAN servers, aðeins internet servers. Hins vegar er ekki loku fyrir það skotið að nauðsynlegt verði að framvísa löglegu eintaki af leiknum við upphaf Wolfenstein keppninnar.
Nokkuð ljóst er að keppt verður í Return to Castle Wolfenstein á Skjálftamóti komanda - enn á þó eftir að ákveða eitt og annað (stærð liða t.d.).
Mótið fer fram fyrri hluta Marsmánaðar, skráning hefst innan 3-4 vikna, og verður unnt að nálgast ýmsar upplýsingar, með góðum fyrirvara, hér á www.hugi.is/wolfenstein.
Fylgist einnig reglulega með www.hugi.is/skjalfti - þar verða almennar upplýsingar um mótið, skráningu og fleira birtar.