Við náðum bara 6 manns á æfingar tvö kvöld áður en NC byrjaði, og í annað skiptið fór helmingurinn af liðinu burt eftir 1 map. Enginn í liðinu fylgdist með NC þegar við fengum gula spjaldið, það var öllu liðinu að kenna, ekki bara zydoran. Ekki skánaði þetta fyrir leikinn sjálfan, við vissum ekki einu sinni hvort við myndum ná 6 manns fyrr en daginn áður, og það var bara því Zyd bætti við nýjum leikmanni á roster (hann bætti við 14. manninum svo við gætum náð 6..). Og já, við vorum mjög óheppnir með forföll fyrir leikinn.
Þetta kallast almennt áhugaleysi og það er ekki hægt að kenna neinum einum manni um það.