Verð ekki mikið var við skítkast þegar ég er á #2, en kemur samt fyrir reglulega.
Svo er annað mál með #1. Ég skellti mér þangað í gær eða fyrradag til að rifja upp gamla tíma og það flugu hótanir manna á milli. Á 5 mínútna fresti var einhver ásakaður um hax, en hvort það var satt er annað mál. Svo voru einnig margir brjálaðir og hótuðu öllu illu ef einhver lét sér detta í hug að klára borðið snemma. Ég var fljótur, það er slæmt ástand á #1.