Nú, Drown.. sá ólátabelgur og dusilmenni. Ekki kæmi mér á óvart ef kauði væri að svindla, hann hefur oft verið kenndur við óheiðarleika og dólgslæti þessi. Ég sel það nú ekki dýrara en ég keypti það, en sá orðrómur er á kreiki að hann stundi ólöglegt athæfi á alnetinu, t.d. við að stela lögum og þess háttar.. get nú ekki trúað öðru en að sá sem brjóti höfundarrétt sé líklegur til þess að nota aimbot og jafnvel verri svindl. Já, þetta er grimmur heimur sem við lifum í. Réttast væri nú að hengja svona ómenni: svindlari í dag - morðingi og bankaræningi á morgun. Við getum ekki látið svona djöfuls besefa og ónytjung ganga alveg yfir okkur!!<br><br>_________
<font color=“darkblue”>l33t cereal for happy pandas!</font