Ég er með win2000 server. Á honum eru nokkur forrit sem þurfa að ræsa, sjálfkrafa, um leið og serverinn er ræstur\\endurræstur. Vandamálið er að ef ég set shortcut í startup möppuna þá ræsa þau ekki fyrr en eftir login. Nú eru fleiri en ég sem endurræsa tölvuna en ekki allir sem mega fá login upplýsingar(notandi:lykilorð). Þannig að spurningin mín er þessi:
Hvað á ég að gera til að ákveðin forrit séu ræst upp þó svo enginn hafi loggað sig inn?