Ég var að spá, á morgun þá fæ ég í hendurnar ferðatölvu sem ég ætla að lít á og laga fyrir eina stelpu sem ég þekki. Þetta lýsir sér þannig að hún getur farið á internetið og allt þannig en allstaðar sem hún loggar sig einhverstaðar inn þá virkar það ekki. En hún getur skoðað allar heimasíður og allt en hvergi loggað sig inn eða neitt. Og þetta á einnig við um MSNið hjá henni, það virkar ekki heldur að skrá sig inná það. Svo ég var að spá bara svo ég verði sem fljótastur að kippa þessu í lag fyrir hana á morgun því hún getur ekki stoppað lengi og getur ekki skilið tölvuna eftir þá var ég að spá hvað haldið þið að þetta geti verið?

Bætt við 20. nóvember 2006 - 21:04
Svo getur vel verið að ég sjái bara strax hvað sé að og geti kippt því í lag en mér skildist á henni þegar hún hringdi í mig áðan að þetta væri böggið.
Cinemeccanica