Veit ekkert hvort að þetta tengist windows eða skjánum vegna þess að ég hef ekkert vit á tölvum.
Þannig er mál með vexti að þegar ég kveiki á tölvunni minni þá kemur þetta letur á skjáinn “SYNC. out of rate” og þetta hreyfist um skjáinn bara endalaust, ég sé enga mynd á skjáinn eða neitt. Bara þetta, kemur ekkert windows upp.
Svo ég komist svo í tölvuna þá þarf ég að slökkva á tölvunni og kveikja aftur. Veit einhver hvað er að hjá mér? Hvað get ég gert?
Fyrirfram þakkir. ;)