Langaði bara til að koma þessu á framfæri.
Microsoft hefur gefið út aðvörun vegna alvarlegs galla sem komið hafi í ljós í Explorer-vafranum og geri tölvuþrjótum kleift að leggja undir sig einkatölvur í gegnum vafrann. Hugbúnaðarfyrirtækið Sunbelt segir ýmsa sem haldi úti klámvefjum notfæra sér þennan galla í vafranum.
Enn sem komið er liggur ekki fyrir hvernig hægt er að loka þessari leið í gegnum vafrann, en Microsoft hefur gefið út leiðbeiningar til notenda um hvernig þeir geti forðast að verða fyrir skakkaföllum af þessum sökum. Bót verði sett á vafrann í næstu öryggisuppfærslu hans, 10. október, eða fyrr ef aðstæður krefjist þess.
Frá þessu greinir fréttavefur breska ríkisútvarpsins, BBC.
Gallinn í vafranum tengist svonefndri vigurteiknun, og geta þeir sem hafa yfir að ráða vel gerðum vefjum notfært sér gallann og komið fyrir svo að segja hverju sem þeim sýnist í þeim tölvum sem þeir beina spjótum sínum að. Tölva sem yrði fyrir slíkri atlögu yrði ónothæf. Athuganir sem Sunbelt gerði á tölvum sem eru með Windows-stýrikerfið og allar nýjustu bætur og öryggisuppfærslur sýndu að þrjótar gátu engu að síður komið inn í tölvurnar miklu af njósnahugbúnaði og öðrum spillihugbúnaði.
En samt finnst mér það fyndið að þeir vara við þessu en hafa ekki enn komið með plástur á þetta. En samt er þó að þeir hafi leiðbeinigar hvernig á að forðast þetta. En þeir ætla ekki að senda út öryggisviðbót fyrr en 10 okt.