Ég vil benda þér á tvennt. Annars vegar hefur verið fjallað um þessa spurningu á korkinum á heimspeki. Þú finnur umræðuna hérna:
http://www.hugi.is/heimspeki/korkar.php?sMonitor=viewpost&iPostID=316315&iBoardID=245&iStart=70Hins vegar hefur verið fjallað um þetta á Vísindavefnum. Mér finnst svarið þar frekar gott og leyfi því að fylgja:
“Spurning: ”Ef tré fellur í skóginum og það er enginn nálægt, heyrist þá eitthvert hljóð?“.
Spyrjandi: Garðar Guðjónsson.
Svar: Sé spurningin tekin bókstaflega hlýtur svarið einfaldlega að vera ”nei“. Sé engin heyrandi vera nálægt trénu sem fellur, hvorki manneskja né annað dýr, heyrist ekkert hljóð því merking orðsins ”að heyrast“ virðist fela í sér að einhver heyri. Hins vegar má umorða spurninguna og spyrja hvort eitthvert hljóð myndist við þessar aðstæður og því er erfiðara að svara. Svarið við þessari breyttu útgáfu af spurningunni veltur á því hvað átt er við með orðinu ”hljóð“.
Sé hljóð einfaldlega sami hlutur og hljóðbylgjur verður svarið ”já“ þar sem hljóðbylgjurnar myndast að sjálfsögðu óháð návist heyrandi vera. Stundum er því haldið fram að sá eiginleiki hlutar að gefa frá sér ákveðið hljóð sé það sama og ákveðin tilhneiging eða máttur hlutarins. Samkvæmt því gefur tréð sem fellur frá sér hljóð ef það er satt að einhver heyrandi vera mundi heyra hljóð ef hún væri nálægt. Allt bendir til þess að þetta sé satt í þessu tilviki og svarið verður því aftur ”já“ samkvæmt þessari útgáfu.
Sumir heimspekingar hafna báðum ofangreindu skilgreiningunum á hljóði eða því að gefa frá sér hljóð og segja að hljóð sé eiginleiki okkar eigin skynjana og búi hvergi annars staðar en í hugum þeirra sem heyra það. Hljóðið sé því ekki myndað af trénu sem fellur heldur myndist það í hugum þeirra sem heyra en tréð sem fellur geti samt sem áður verið ein af orsökum þess að heyrandi vera myndi hljóð í huga sínum. Ef engin heyrandi vera er nærstödd myndast því ekkert hljóð samkvæmt kenningum á borð við þessa heldur myndast aðeins eitthvað sem gæti verið orsök hljóðmyndunar ef réttu aðstæðurnar væru fyrir hendi.
Eyja Margrét Brynjarsdóttir,
stundakennari í heimspeki við HÍ”
af
http://www.visindavefur.hi.is, 28.03.00.
<br><br>_____________________________
Aut tace aut loquere meliora silentio.