Ég er töluvert sannfærður um að geimverur( í þessari mynd), á jörðinni, séu ímyndun ein. Í öllum tali um græna geimkarla á jörðinni, hefur enginn minnst neitt á að verurnar væru með hjálma.
Ok, ok virðist vera smáatriði. En ef við gerum ráð fyrir að efnasamsettning geimverufrumanna sé önnur en okkar t.d. að megin uppistaðan væri t.d. silikon, sem er þó mjög ólíklegt (hentugasta efnið fyrir líf er C, líf á jörðinni grundvallast á kolefnissamböndum), gæti andrúmsloftið virkað sem “púra” eitur á geimkarlanna eða verra geimskrípin gætu fuðrað upp þar sem súrefni er mjög hvarfgjarnt.
Gerum þá ráð fyrir að efnasamsetning geimveranna væri svipuð okkar(sem er mun liklegra) og líkamsstarfsemin þá einnig svipuð þá þyrftu geimverunnar að hafa miklar áhyggjur af bakteríum of vírusum í andrúmsloftinu ef þær ætluðu að labba um berhöfðaðar.
Annars eru uppi áhugaverðar kenningar um svefnfyrirbæri sem nota mætti til að útskýra geimverusjáendur út um allan heim.
Njótið vel