Arg, ég keypti 3Com OEM modem hjá computer.is og það fylgdu engvir driverar með þannig að ég skrapp á netið með gömla módeminu og sótti drivera fyrir kortið, nefna má að þeir voru ekki finnanlegir á síðu 3Com líkt og computer.is hafði bent á á síðu sinni og þurfti ég að finna þá með hjálp www.driverguide.com

Loks þegar ég hafði sett kortið upp og byrja á að reyna tengjast ISP'inum mínum þá heyrist þetta ógurlega suð, og við betri athugun sá ég að það hafði komið frá ´littlum hátalara á modeminu… og það komu skilaboð um að ég gæti ekki klárast að tengjast netinu… ég prufaði að setja það upp sem standard modem en þá reyndi það ekki einusinni að hringja… þetta fannt mér mjög undarlegt. Ég hef sett upp mörg módem og aldrei lent í neinu þessu líku…

Hefur eitthver ráð við þessu eða lent í svipuðum aðstæðum ?
Mortal men doomed to die!