Kannski er þetta ekkert alslæmur hiti í 60 gráðum, en það er hægt að ná þessu niður einfaldlega með því aðeins að hugsa aðeins út loftlæðið í kassanum. Það er til óendanlega mikið af síðum á netinu sem geta sýnt þér hvernig á að beina loftinu til þess að fá sem bestan árangur. Annars þar sem bróðir minn er með 1400amd thunderbird sem keyrir á 50 og eitthvað, þá er nú alveg svigrúm til að ná þessu niður, þessum 60 gráðum þeas. Betra heatsink, öflugri vifta, athuga að loftflæði inn og út úr kassa sé nokkurn veginn það sama, minnka allar hindranir sem loft verður fyrir á leið sinni inn og út úr kassanum, setja filter á viftur sem soga inn ef sá möguleiki er fyrir hendi. Þetta er bara spurning um hvað þú ert tilbúinn að leggja mikið í til að kæla örgjörvan niður.
Hann keyrir kannski ágætlega á 60 gráðum, og ef hann gerir það, afhverju ætti hinn almenni notandi þá nokkuð að vera að velta þessu fyrir sér. Svo virðist sem fólk vilji fá lægra hitastig án þess að velta nokkuð fyrir sér af hverju það vilji fá lægra hitastig.
Fyrir mig þá er það mikilvægt til þess að geta haldið vélinni klukkaðri eins og hún er, allt yfir 26 gráðum veldur vandræðum. Fyrir hinn almenna notanda, sem spilar kannski CS eða quake eða whatever, þá skiptir þetta kannski ekki svo miklu máli. Ef að leikurinn keyrir og vélin er stöðug við þetta hitastig, vertu þá ekki að velta þessu fyrir þér.
En ef ykkur vantar gott heatsink. Þá get ég reddað ykkur “artifical diamond” heatsink. 2000$ stykkið. Leiðir hitann best af öllu.
Fyrir hinn almenna notanda myndi ég einfaldlega mæla með stóru heatsinki, og viftu, helst 8cm , sem snýst kannski í 3000 rpm. Þá færðu kælingu sem virkar, og þú verður ekki geðveikur af hávaðanum.
Ég sá á einhverri síðu mynd af frekar fallegum kassa, búið að modda hann vel og svona. En það sem sló mig mest var þessi setning. “Og svo eru 16 viftur í kassanum, þannig að kælingin ætti ekki að vera neitt mál”.
16 viftur.. til hvers? nema það sé búið að úthugsa það vel staðsetningu á hverri einustu viftu, búið að loka fyrir ýmsa staði í kassanum til að leiða loftið betur, þá sé ég ekki betur en það eina sem þessar viftur geri er að búa til storm inní kassanum.
Stormur = slæmur hlutur.
Loftflæðið þarf að vera jafnt inn og út úr kassanum til þess að viðhalda optimal hitastigi.
Ahh.. ég skrifa grein um þetta einhverntímann…
<br><br>Vectro
“Women might be able to fake orgasms. But men can fake whole relationships.”
“Face it. We all want women who will pamper us like our mothers, and screw us like the government.”