Munurinn er sá að venjulegir (t.d. gömlu Pentium) örgjörvar eru stakir, ss. bara einn örgjörvi sem sér um útreikninga. Í dual core örgjörva eru þeir tveir, í quad core eru þeir fjórir.
Performance munurinn felst almennt í því að:
1) Ekki allt styður quad örgjörva, sérstaklega leikir. Einungis allra nýjustu high-end leikirnir styðja þá, ég veit ekki um neinn leik nema Crysis sem styður quad en það gætu verið komnir fleiri núna. Mynd- og þrívíddarvinnsluforrit á borð við Photoshop og Maya eru hins vegar flest með góðan stuðning við quad-core.
2) Dual core hafa venjulega hærri klukkuhraða (Gíga-Hertzin), amk fyrir svipaðan pening, svo fyrir það sem ekki styður quad eru dual core betri.
Svo, niðurstaðan er: Dual core fyrir leiki, quad core fyrir mynd- og þrívíddarvinnslu.
Peace through love, understanding and superior firepower.