Veit ekki alveg hvort þetta eigi heima hér en ég er með smá vesen.

Ég ætla að tengja fartölvuna mína með HDMI í sjónvarpið og allt í lagi með það, ég fæ mynd á bæði tölvuna og sjónvarpið, hins vegar fæ ég ekkert hljóð úr sjónvarpinu heldur aðeins úr tölvunni. Veit einhver hvað ég þarf að gera? er búinn að fikta svolítið við sound systemið í tölvunni en ekkert virðist ætla að virka.