Ég var að kaupa mér nýja vél, og þurfti að spandera um 40þúsund kalli auk þess sem ég seldi eldri vélina mína á 45þúsund, þannig að samanlagt = 85þús.
Það sem ég endðai í var AOpen AK77 móðurborð, 256mb DDR, GeForce3 Ti200, AMD XP 1800, 2x 80mm kassaviftur, kæliplata á amd athlon xp, Dragon kassi(16k)…
Ég reyndar fékk flott “spesjal præs for jú mæ frend” verð á flestum hlutunum, þannig að þú gætir reiknað með að svona pakki kosti eitthvað aðeins meira, þ.e listaverð.
Dæmi:
Computer.is
XP 1800: 35k
GF3 Ti200: 29k(Þetta er reyndar leadtek kort, ég keypti Hercules sem er vanalega dýrara, enda mun betra, myndi giska á 33k)
Móðurborð(AOpen AK77Pro): Fann ekki þetta móðurborð,en myndi giska á kringum 15-20k.
256mb DDR: 12k
Kassi(Dragon í hugver, svartur): 16k
Kassaviftur: 1200x2 = 2400
Kæliplata: 5k
Samtals: 116.400 sirka?