Breytir því samt ekki að þú ert að borga sjúklega mikið fyrir merkið.
En ókei ef ég púsla saman frekar basic tölvu á alienware.com þá fæ ég eftirfarandi:
Örgjörvi: E6750
Móðurborð: Nvidia 680i SLI
Minni: 2x1GB DDR2-800
Skjákort: Nvidia 8800GT 512MB
Harður diskur: 500GB SATA
Geisladrif: 20x Dual layer burner
Aflgjafi: 750W
Og svo standard Alienware Kassi.
Samtals kostar þetta samkvæmt síðunni: 1499 dollara.
Og púslum síðan saman svipaðri tölvu á newegg.com (virt tölvuverslun í bandaríkjunum)
Örgjörvi: E6750 - $190
Móðurborð: eVGA Nforce 680i SLI - $230
Minni: GSkill 2x1GB DDR2-800 - $47
Skjákort: eVGA 8800GT 512MB Superclocked - $250
Harður diskur: WD 500GB SATA - $105
Geisladrif: Samsung 20x DVD burner $30
Aflgjafi: Thermaltake 750W - $175
Kassi: Antec 900 - $120
Samtals: 1147 dollarar
Ég vill taka það frama að í flestum tilvikum (þar sem um marga framleiðendur var að velja úr) valdi ég yfirleitt þá mest seldu eða þá með hæstu einkun svo að þetta er alls ekki eins ódýrt og svona tölva gæti verið.
Ég vill einnig taka það fram að 750W aflgjafi er algjört grín fyrir svona set-up. 500W væri meira en nóg og þú ættir samt efni á yfirklukkun.
Þú veist líka ekkert hvað þú ert að fá þegar þú kaupir þér alienware tölvu. Móðurborðið er hannað af þeim svo þú getur ekki fundið reviews um það á netinu og borið saman við önnur borð.
Þú veist ekki frá hvaða framleiðanda skjákortið er, þú veist ekki tímasetningarnar á minninu, þú veist ekki frá hverjum harði diskurinn er og þú getur ekki borið þennan aflgjafa saman við aðra.
Reikna líka passlega með því að BIOS-inn sé harðlæstur svo þú getur ekkert yfirklukkað.
Ég ætla ekki einu sinni að tala um hversu heimskulegt það er að velja tölvu út af útlitinu en læt samt hið góða máltak fylgja að “það á ekki að dæma bók útfrá kápunni”.