Málið er að ég fékk flakkarann hans pabba lánaðan, til að færa dót á milli tölvunnar minnar og tölvunnar hjá vini mínum… og svo allt í lagi með það… þegar ég var búinn að því að þá ætlaði ég að tengja hann aftur við tölvuna mína, og þá er eins og hann detecti ekki diskinn:S eða sko hann sýnir alveg að hann tengist… bara máli er að þegar ég fer í My Computer, að þá kemur bara Local Disk(G:) og ekkert inná honum..
ef ég hægri klikka á hann og ýti á properties, þá stendur bara

Used Space: 0 bytes
Free Space: 0 bytes

og inná þessum flakkara voru videomyndir og fjölskyldumyndir seinustu 3 ára, einu afritin þarna inni, og þetta má ekki vera horfið! annars er ég dauður!

veit einhver hvort ég geti lagað þetta, og hvernig þá?

*edit*

og já btw að þá heyrist alltaf þegar ég kveiki á honum svona hökt í honum, held að það hafi eitthvað með þetta að gera :S


Bætt við 15. október 2007 - 13:53
og þetta er ekki af því að hann datt í gólfið, ég var að nota hann í gær, horfa á þætti í góðum fílíng, en svo þurfti vinur minn að fá hann lánaðan, við plögguðum diskinum í tölvuna hans, og hann náði að færa á milli allt sem honum vantaði, en svo þegar ég fékk hann tilbaka að þá byrjaði þetta *Tikk Tikk* hljóð, og eitthvað… svo að… er hægt að bjarga þessu?!