Góðan dag.

Mér datt í hug hvort að einhver hérna gæti hjálpað mér með þetta vandamál. Ég er með Sli og tvö skjákort en ég á tvo skjái. En fúlmennin hjá nvidea voru það skemmtilegir að láta driverinn fyrir skjákortin disable-a þann möguleika að nota tvo skjái ef maður er með Sli virkt. Ég veit að það var einhver driver sem einhverjir driver hópur hefðu gert sem löguðu þetta. En ég finn ekki þessa drivera. Svo að veit einhver aðra lausn á þessu máli eða hvar driverarnir eru?

Er með tvö 6600 skjákort btw.

Takk takk.