Bróðir minn keypti sér Fujitsu siemens tölvu 2 GB vinnsluminni 200 GB harður diskur…frekar dýr 190 000 en hún er bara frekar góð…hann keypti hana í Bt og hún er að virka jafnvel og HP tölva frænku minnar :) ….er bara pæla afhverju sumir segja ekki kaupa í BT…..
Af því að BT voru að selja Medion fartölvur hérna í den og þær voru vægast sagt ekki góðar. Þeir eru hins vegar búnir að skipta þeim út í dag fyrir Toshiba og Fujitsu Simens, og það skiptir litlu hvort þú kaupir þær í BT eða einhversstaðar annarsstaðar, þetta eru sömu tölvunar. Svo eru BMS Tölvulausnir líka með ábyrgðarþjónustu fyrir Medion á Íslandi og þeir hafa nú ekki þótt liðlegustu menn í heimi. Tæknival hins vegar þjónustar Toshiba og Fujitsu þannig að ég sé ekkert því til fyrirstöðu að versla í BT. Raunar mæli ég með því.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..