Sælir,

Keypti mér Logitech G-15 lyklaborð í dag, og allt í lagi með það, en ég fylgist með RAM notkuninni á skjánum á lyklaborðinu. Það er bara eins og fast í kringum 70-80%. Og örgjörvinn er í minna en 5% notkun.

Það sem ég er með í gangi er mIRC, iTunes, 2 Firefox glugga , Msn og 4 conversation glugga og ekki mikið fleira.

Er það eðlilegt að nota 70-80% af minninu með þetta í gangi ?
Hef reyndar ekki formattað síðan ég fékk tölvuna í apríl '04.

Specs :

CPU: Intel(R) Pentium(R) 4 CPU 3.00GHz @ 2992MHz 6% Usage
76% Ram Used | Total RAM = 511 MB | Available RAM = 121 MB

Btw, Medion tölva.