Varstu að setja kælinguna á, og varð þetta svona allt í einu eða smá saman?
Er þetta nýtt móðurborð? Eitt borð sem ég á er einmitt að sýna 46 IDLE og 72 BURN, en það er vel þekkt að BIOS readings ERU ALLS EKKI rétta hitastigið, ef þér líður mjög illa að sjá þessar tölur og ert viss um að kælingin er vel föst á og allt í góðu (ekkert ryk og gott loftflæði í kassanum) geturu prófað að uppfæra BIOS-inn og það nánast öruggt að hitastigið (reyndar bara talan) lækkar. En þú VERÐUR að fara varlega með uppfærslu á BIOS, aðalreglan þar er aðeins að uppfæra ef það lagar eitthvað sem uppfærslan var gerð til að laga, t.d. support fyrir 64 bita örgjörva hjá Win os.frv.
Gangi þér vel.