Er jafnrétt að nota orðið tölva og talva?Þegar búa þurfti til íslenskt orð yfir enska heitið ‘computer’ varð orðið tölva fyrir valinu. Í desember árið 1964 eignaðist Háskóli Íslands fyrstu tölvu sína, IBM 1620. Orð þótti vanta yfir gripinn og er Sigurði Nordal prófessor eignað orðið tölva sem hann setti fram 1965. Áður höfðu menn notast eitthvað við orðið rafeindareiknir. Tölva er myndað eftir orðum eins og slöngva og völva. Rétt mynd er því tölva sem beygist svona:
et. ft.
nf. tölva tölvur
þf. tölvu tölvur
þgf. tölvu tölvum
ef. tölvu tölva
Benda má á greinina „Um orðið tölva“ eftir Baldur Jónsson í Sagnaþingi helguðu Jónasi Kristjánssyni. I: 33-44. Reykjavík 1994.Í þessu svari felst að íslenska nýyrðið er tölva en ekki “talva”.-
Ég bara varð að koma með þetta :)
-
Að mínu mati er best að setja tölvu saman sjálfur.
Hinsvegar eiga
Shuttle tilboðin í
Tölvuvirkni að vera góð.