Það fer alveg eftir því hvaða kubbasett er á skjákortinu hjá þér. Ef þú ert með kubbasett BT848/878 þá ertu í ágætum málum. Prufaðu að leita á netinu eftir til dæmis diskret99 og með smá þýsku kunnáttu eða fikti ættir þú að fá mynd. Ef þú ert síðan með mono kort þarftu líka að finna eitthvað fyrir hljóðið, prufaðu til dæmis Perfect Audio.
Annars færðu mun betri árangur með því díla beint við stöð2 :o)
annars gott gengi, olim
p.s. þetta er líklega svona álíka leyfilegt og þegar menn voru að breyta gömlu afruglurunum hér í gamla daga